Sumar­námskeið SEF: Umsóknar­frestur er til 17. janúar 2017 kl. 17:00

9.12.2016

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til sumarnámskeiða Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF).

Umsækjendur sumarnámskeiða skulu vera bókhaldsskyldar fræðslu· stofnanir; svo sem háskólar, fræðslumiðstöðvar og símenntunar­stofnanir. Fulltrúar faggreinafélaga geta tekið þátt í skipulagningu sumarnámskeiða í samstarfi við fræðslustofnanirnar.

Félög tungumálakennara geta sótt um styrki vegna námskeiða erlendis annað hvert ár, en önnur félög á þriggja ára fresti. Góður rökstuðningur skal liggja fyrir ástæðu þess að halda námskeiðið erlendis.

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF) mun fara yfir umsóknir og taka ákvörðun um hvort námskeið verði styrkt eða ekki. Styrkur verður greiddur út til fræðslustofnunar að námskeiði loknu, þegar lokaskýrsla og endanlegt uppgjör hefur borist Rannís.

Athygli er vakin á því að laun fyrirlesara/kennara hafa verið hækkuð um 10% frá síðustu umsóknarlotu og að umsjónarlaun fagfélaga hafa verið hækkuð um 20%. Eins hefur þóknun til fagfélags sem heldur námskeið erlendis verið hækkuð upp í 200.000 krónur að hámarki og er þá ferðakostnaður skipuleggjanda innifalinn í styrknum.

Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2017, kl. 17:00.

Nánar um skilyrði og umsóknarferlið sumarnámskeiða á síðu sjóðsins

Upplýsingar veitir Jón Svanur Jóhannsson









Þetta vefsvæði byggir á Eplica