Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði

10.3.2020

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði, en hlutverk sjóðsins er að byggja upp rannsóknainnviði á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 21. apríl 2020, kl. 16:00.

Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum. 

Við úthlutun úr Innviðasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Innviðasjóðs og eftirtalin atriði lögð til grundvallar:

  • Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
  • Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir.
  • Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
  • Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar.
  • Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun á viðkomandi fræðasviði.
  • Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig aðgengi verður háttað.

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel reglur sjóðsins áður en umsókn er gerð. Handbók Innviðasjóðs má finna á vefsíðu Innviðasjóðs.

Í samræmi við stefnu og aðgerðaráætlun Vísinda- og tækniráðs frá 2017 er verið að vinna að gerð vegvísis fyrir rannsóknainnviði. Auglýst verður fljótlega eftir umsóknum um viðameiri innviði sem eiga erindi á vegvísi um rannsóknainnviði.

Steinunn S. Jakobsdóttir veitir upplýsingar um Innviðasjóð.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica