Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði

4.3.2021

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Innviðasjóð. Hlutverk sjóðsins er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2021, kl. 15:00.

  • ING_19061_312770

Innviðasjóður veitir styrki til kaupa og uppbyggingar á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum. Sérstaklega verður tekið tillit til innviðaverkefna á vegvísi sem njóta, að öðru jöfnu, forgangs við úthlutun styrkja.

Við úthlutun úr Innviðasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Innviðasjóðs og eftirtalin atriði lögð til grundvallar:

  • Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
  • Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir.
  • Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
  • Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar.
  • Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun á viðkomandi fræðasviði.
  • Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig aðgengi verður háttað.

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel reglur sjóðsins áður en umsókn er gerð. Handbók Innviðasjóðs og allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðu sjóðsins.

Steinunn S. Jakobsdóttir veitir upplýsingar um Innviðasjóð.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica