Sérfræðingur í rannsóknateymi

18.11.2021

Sérfræðingur óskast í fullt starf hjá rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís. Starfið felur í sér umsjón með tveimur fagráðum Rannsóknasjóðs; fagráði raunvísinda og stærðfræði og fagráði verkfræði og tæknivísinda, umsjón með Loftslagssjóði og öðrum innlendum sjóðum og alþjóðlegum verkefnum á þessum fagsviðum með sérstakri áherslu á umhverfismál.

Umsjón með fagráðum raunvísinda og stærðfræði og verkfræði og tæknivísinda felur í sér skipulagningu á vinnu fagráða við mat á umsóknum í Rannsóknasjóð og undirbúning að ákvörðunum stjórnar sjóðsins um úthlutun. Allar umsóknir eru á ensku og matsferlið einnig þar sem allir matsmenn starfa utan Íslands. Meðal annarra innlendra sjóða eru Loftslagssjóður og Doktorsnemasjóður umhverfis- og auðlindaráðuneytis . Alþjóðleg verkefni fela m.a. í sér þátttöku í norrænu og evrópsku samstarfi sambærilegra stofnana sem samfjármagna alþjóðleg rannsóknarverkefni. Einnig kynningu fyrir íslenska aðila á alþjóðlegum tækifærum í Horizon Europe , evrópsku rannsókna- og nýsköpunaráætluninni og Life Programme, evrópsku umhverfisáætluninni. Starfið felur í sér mikil samskipti við umsækjendur og styrkþega og innlenda og erlenda samstarfsaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meistarapróf á sviði verkfræði eða raunvísinda er áskilið en doktorspróf er kostur
  • Reynsla af rannsóknum ásamt þekkingu á rannsóknaumhverfi er skilyrði
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku bæði tal- og ritmáli
  • Góð kunnátta í Norðurlandamáli er kostur
  • Mjög góð færni í töflureikni er skilyrði ásamt færni í helstu Office forritum eða sambærilegu
  • Mjög góð hæfni í greiningu og lausn vandamála er skilyrði
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni áskilin
  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu

Upplýsingar um starfið veitir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs, í síma 515 5830 eða netfanginu agust.h.ingthorsson(hja)rannis.is

Umsóknarfrestur var til kl. 16:00, þriðjudaginn 30. nóvember 2021. Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma. Umsóknarferli er hafið.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini. Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér vel starfsemi sviðsins og sérstaklega Rannsóknasjóðs (sjá handbók sjóðsins fyrir 2022).

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Við ráðningu í starfið verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun ákvarðast af viðeigandi kjarasamningi við fjármálaráðuneytið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica