Sjöunda Norræna-kínverska norðurslóðaráðstefnan
Sjöunda Norræna-kínverska norðurslóðaráðstefnan verður haldin í Shanghai, 8.-9. maí 2019. Þar verður m.a. fjallað um fiskveiðar í Norður-Íshafi, Silkileið norðursins (Polar Silk Road) og sjálfbæra þróun á norðurslóðum.
Athygli er vakin á því að ráðstefnan er haldin á undan Arctic Circle China Forum sem fer fram í Shanghai 10.-11. maí nk.
Frestur til að senda inn ágrip að erindi á ráðstefnuna er 11. mars nk. og skal senda til eftirtaldra:
Egill Þór Níelsson, China-Nordic Arctic Research Center (CNARC) og
Zhu Jiangfeng , Shanghai Ocean University.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér.
Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Gunnarsson , sérfræðingur á alþjóðasviði Rannís.