Stefnumót fyrirtækja um lausnir á sviði ferðatækni og stafrænna tækifæra í ferðaþjónustu

3.1.2024

Þann 17. janúar næstkomandi fer fram fyrsta fyrirtækjastefnumót Miðstöðvar stafrænnar nýsköpunar á Íslandi (EDIH-IS) og er það haldið í samstarfi við Ferðamálastofu og Íslenska ferðaklasann.

Ferðatæknimótið leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á örstefnumótum. Ferðatæknimótið er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir/bjóða upp á ráðgjöf og lausnir á sviði ferðaþjónustu. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við ferðatækni og aðra stafræna þróun ferðaþjónustunnar.

Markmið viðburðarins eru að:

  • Leiða saman ferðaþjónustufyrirtæki og tæknifyrirtæki
  • Stuðla að stafrænni þróun og markvissri notkun á tækni í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja, öllum til hagsbóta
  • Hvetja ferðaþjónustufyrirtæki til að kynna sér þær lausnir og tækni sem eru í boði
  • Bjóða tæknifyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu.

Við hvetjum áhugasama aðila um stafræna þróun ferðaþjónustunnar til að skrá sig á viðburðinn og bóka örstefnumót við íslensk ferða- eða tækniþjónustufyrirtæki. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fyrirtæki til að kynna starfsemi sína fyrir mögulegum kaupendum innan ferðaþjónustunnar.

Nánari upplýsingar og skráning 

Rannís er einn stofnaðila EDIH-S ásamt Auðnu tæknitorgs, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Origo og Syndis.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica