Stjórn Rannsóknasjóðs 2016-2019 skipuð

25.2.2016

Mennta- og menningarmálaráðherra skipaði 24. febrúar 2016 stjórn Rannsóknarsjóðs, sbr. 4. gr. laga nr. 3/2003 um opinberan stuðning við vísindarannsóknir. Stjórn Rannsóknasjóðs fer jafnframt með stjórn Innviðasjóðs. Skipunartími stjórnarinnar er til 22. febrúar 2019.

Stjórnin er skipuð sem hér segir:

  •  Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík, formaður, varamaður: Þorgerður Einarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.
  • Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, varaformaður, varamaður:  Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands.
  •  Freygarður Þorsteinsson, Össuri hf., varamaður: Ebba Þóra Hvannberg,  prófessor við Háskóla Íslands.
  • Þóra Steingrímsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, varamaður: Stefán B. Sigurðsson, prófessor við Háskólann á Akureyri.
  •  Steinunn Gestsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, varamaður: Karl Konráð Andersen, prófessor við Háskóla Íslands.          

Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi.  Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Rannsóknasjóður veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu. 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica