Styrkir og tækifæri fyrir skapandi greinar innan ESB

1.11.2023

Vefstofa fyrir stofnanir, félög og fyrirtæki mánudaginn 6. nóvember næstkomandi kl. 13:00. Nauðsynlegt að skrá sig.

Mánudaginn 6. nóvember 2023 kl. 13:00 munu sérfræðingar Rannís fara yfir áætlanir ESB sem snúa að skapandi greinum, styrkjamöguleikum og þá þjónustu sem er í boði fyrir stofnanir, félög og fyrirtæki.

Dagskrá:

  • Creative Europe – Ragnhildur Zoëga
  • Horizon Europe – Sigrún Ólafsdóttir
  • Enterprise Europe Network (EEN) og Worth – Mjöll Waldorff
  • Reynslusögur íslenskra þátttakenda í þessum áætlunum.

Vefstofan er ókeypis og öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá sig. Skráningu lýkur 5. nóvember.

Skráning á vefstofu

Teams hlekkur verður sendur á skráða þátttakendur daginn fyrir fundinn en við getum ekki ábyrgst að fundarboð berist ef fyrirvarinn er stuttur.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica