Rannís auglýsir eftir umsóknum í Barnamenningarsjóð

24.3.2021

Auglýst er eftir umsóknum um árlega styrki úr Barnamenningarsjóði Íslands. Umsóknarfrestur er til 7. apríl kl. 15.00.

  • Barnamenningarsjodur_Islands_merki-portrait

Sjóðurinn er átaksverkefni til fimm ára, stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins á hátíðarfundi Alþingis 18. júlí 2018.

Hlutverk sjóðsins er að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Verkefni sem stuðla að lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka mið af inntaki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa sérstakt vægi.

Áhersla er lögð á samstarf tveggja aðila eða fleiri, svo sem menningarstofnana, skóla, listafólks og félagasamtaka og er hvatt til þess að samstarfsverkefni séu unnin í samstarfi ólíkra aðila, t.d. að stofnanir leiti samstarfs við skapandi fólk fremur en við aðrar stofnanir.

Umsóknarfrestur rennur út 7. apríl 2021 kl. 15.00.

Upplýsingar og umsóknargögn eru að finna á vefsíðu Barnamenningarsjóðs.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica