Styrkir úr Tónlistarsjóði 2016

1.4.2016

Auglýst er eftir styrkumsóknum í Tónlistarsjóð til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. júlí - 31. desember 2016.

 Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.

Upplýsingar og umsóknargögn eru að finna á síðu Tónlistarsjóðs .

Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.

 Umsóknarfrestur rennur út 17. maí 2016 kl. 17:00.

 Auglýst verður eftir umsóknum vegna verkefna fyrri hluta árs 2017 í október 2016.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica