Styrkir úr Tónlistarsjóði 2017

1.4.2017

Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr Tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2017. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2017 kl. 17:00. 

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla aðkynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- ogkynningardeild.

Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á síðu Tónlistarsjóðs . Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi. 

Umsóknarfrestur rennur út 15. maí 2017 kl. 17:00. Ekki er hægt að senda inn umsóknir eftir þann tíma.

Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, í maí og nóvember.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica