Styrkir úr Tónlistarsjóði 2017

2.10.2017

Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr Tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2018.

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.

Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Umsóknarfrestur rennur út 15. nóvember 2017 kl. 16.00.  Ekki er hægt að senda inn umsóknir eftir þann tíma.

Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, í maí og nóvember.

Sjá nánari upplýsingar á síðu Tónlistarsjóðs .









Þetta vefsvæði byggir á Eplica