Styrkir úr Tónlistarsjóði 2018

3.4.2018

Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr Tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2018.

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.

Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís .

Umsóknarfrestur rennur út 15. maí 2018 kl. 16. Ekki er hægt að senda inn umsóknir eftir þann tíma.

Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, í maí og nóvember.

Sjá nánari upplýsingar á síðu Tónlistarsjóðs.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica