Styrkir úr Tónlistarsjóði 2020

19.3.2020

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2020.

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.

Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.

Umsóknarfrestur rennur út 4. maí 2020 kl. 16.00. Athugið að ekki er hægt að senda inn umsóknir eftir þann tíma.

Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, í maí og nóvember.

Sjá nánari upplýsingar á síðu Tónlistarsjóðs.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica