Umsóknarfrestur um sóknarstyrki framlengdur

18.10.2019

Umsóknarfrestur um sóknarstyrki til undirbúnings umsókna í alþjóðlega rannsóknasjóði, hefur verið framlengdur til 25. október 2019.

  • Hubunadarserfraedingur-auglysing-mars-2019

Markmiðið með sóknarstyrkjum er að auðvelda íslenskum aðilum að taka þátt í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum með sókn í erlenda sjóði. Stjórnir Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs leggja til allt að 20 m.kr. á árinu 2019 til þess að styrkja undirbúning alþjóðlegs vísinda- og rannsóknasamstarfs með íslenskri þátttöku. Forgangur er veittur umsóknum vegna undirbúnings umsókna í Horizon en mögulegt er að styrkja annað samstarf samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.

Umsóknarfrestur hefur nú verið framlengdur til 25. október 2019, og þurfa umsóknir að berast Rannís fyrir kl. 16:00.

Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Sjá nánar hér um sóknarstyrki og aðgang að rafrænu umsóknarkerfi. 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica