Úthlutun úr Nýsköpunarsjóði námsmanna 2017

24.3.2017

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur lokið úthlutun fyrir sumarið 2017. Nýsköpunarsjóði námsmanna bárust alls 215 umsóknir í ár fyrir 322 háskólanema. Umsóknarfrestur rann út 10. febrúar síðastliðinn. Alls var sótt um rúmlega 217 milljónir króna eða laun í 932 mannmánuði.

Að þessu sinni hafði sjóðurinn um 73 milljónir króna til úthlutunar og hlutu alls 68 verkefni styrk (árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki er því 31,6%). Í styrktum verkefnum eru 107 nemendur skráðir til leiks í alls 314 mannmánuði.

Allir umsækjendur fá tölvupóst með nánari upplýsingum um úthlutunina. Sá listi sem birtur er hér er yfir þau verkefni sem hljóta styrk árið 2017. Listinn er birtur með fyrirvara um villur.

Verkefnin eru skráð eftir titlum verkefna og nöfnum umsjónarmanna ásamt upplýsingum um aðsetur þeirra og þá upphæð sem verkefnin hljóta í styrk.

Sækja úthlutunartöflu sem pdf.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica