Úthlutun úr Nýsköpunarsjóði námsmanna 2019

7.3.2019

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur lokið úthlutun fyrir sumarið 2019.

  • Nyskopunarverdlaun-forseta-islands

Nýsköpunarsjóði námsmanna bárust alls 154 umsóknir í ár fyrir 228 háskólanema. Umsóknarfrestur rann út 5. febrúar síðastliðinn. Alls var sótt um rúmlega 199 milljónir króna eða laun í 662 mannmánuði.

Að þessu sinni hafði sjóðurinn um 80 milljónir króna til úthlutunar og hlutu alls 59 verkefni styrk (árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki er því 38,3 %). Í styrktum verkefnum eru 90 nemendur skráðir til leiks í alls 262 mannmánuði.

Allir umsækjendur fá tölvupóst með nánari upplýsingum um úthlutunina. Sá listi sem birtur er hér er yfir þau verkefni sem hljóta styrk árið 2019. Listinn er birtur með fyrirvara um villur.

Verkefnin eru skráð eftir nafni umsjónarmanns og titli verkefnis ásamt upplýsingum um aðsetur umsjónarmanns og þá upphæð sem verkefnið hlýtur í styrk.

Sækja úthlutunartöflu (pdf).









Þetta vefsvæði byggir á Eplica