Vel heppnuð opnunarhátíð samstarfsáætlana ESB
Ný tækifæri í Evrópusamstarfi voru kynnt í beinni útsendingu frá Borgarleikhúsinu fimmtudaginn 15. apríl kl. 14:00-16:00, þegar nýrri kynslóð samstarfsáætlana ESB í umsjón Rannís, var hleypt af stokkunum.
Á opnunarhátíð voru kynnt tækifæri og styrkir í Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætluninni, Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætluninni, European Solidarity Corps á sviði samfélags- og sjálfboðaverkefna og Creative Europe menningaráætluninni.
Kynnir og stjórnandi var Bergur Ebbi Benediktsson.
Dagskrá:
- Opnunarávarp. Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
- Ávarp frá sendiherra Evrópusambandsins. Lucie Samcová-Hall Allen sendiherra ESB á Íslandi.
- Ný kynslóð áætlana 2021-2027. Hver er árangurinn og hvað er framundan? Stjórnendur samstarfsáætlana ESB hjá Rannís mættu í sófaspjall ásamt styrkþegum og kynntu það helsta sem er framundan í nýjum áætlunum.
- Rúna Vigdís Guðmarsdóttir forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+ og ESC og Álfhildur Leifsdóttir kennari í Árskóla á Sauðárkróki, Erasmus+ verkefnastjóri.
- Sigrún Ólafsdóttir stjórnandi Horizon Europe og Rúnar Unnþórsson prófessor og deildarforseti iðnverkfræði- vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar Háskóla Íslands, Horizon 2020 verkefnastjóri.
- Ragnhildur Zoëga stjórnandi Creative Europe Desk og Gísli Örn Garðarsson leikari, leikstjóri og framleiðandi hjá Evrópa kvikmyndir, Creative Europe verkefnastjóri.
- Myndbönd voru sýnd til kynningar á áhugaverðum verkefnum.
Rannís hefur umsjón með samstarfsáætlunum ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar, menningar og æskulýðsmála á Íslandi.
Áhugasamir geta einnig hlýtt á viðtöl við sérfræðinga Rannís í fjölmiðlum:
- Rás 1, Morgunvaktin - viðtal við Ágúst Hjört Ingþórsson, sviðsstjóra rannsókna- og nýsköpunarsviðs (hefst 01:21)
- Rás 2, Síðdegishútvarpið - viðtal við Aðalheiði Jónsdóttur, sviðsstjóra mennta- og menningarsviðs (hefst 00:47)
- Harmageddon - viðtal við Evu Einarsdóttur, kynningarstjóra Landskrifstofu Erasmus+ og Nordplus (hefst 1:56)
Vertu með og kynntu þér ný tækifæri og styrki í Evrópusamstarfi!
Opnunarhátíðinni var streymt: