Vorfundur Tækniþróunarsjóðs 2019

6.6.2019

Árlegur vorfundur Tækniþróunarsjóðs var haldinn í Iðnó fimmtudaginn 6. júní kl. 15:00-18:00 undir yfirskriftinni: Hringrásarhagkerfið - sjálfbær nýsköpun.

  • Vorfundur_t_2019

Fimmtudaginn 6. júní blés Tækniþróunarsjóður til vorfundar í Iðnó í Reykjavík, þar sem vorúthlutun var kynnt, nýjum styrkþegum var fagnað og flutt voru áhugaverð erindi úr heimi nýsköpunar og tækniþróunar. Vorfundinum lauk með spjalli, léttum veitingum og ljúfum tónum.

Mikko Kosonen forseti finnska nýsköpunar-sjóðsins Sitra hélt fyrirlestur ásamt því að taka þátt í pallborðsumræðum, en sjóðurinn er í fararbroddi í að leiða vegferð Finnlands að því að verða hringrásarhagkerfi fyrir árið 2025.

Dagskrá:

Vorúthlutun Tækniþróunarsjóðs

Opnunarávarp ráðherra. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar

Finland as a Forerunner in the Circular Economy. Mikko Kosonen, forseti Sitra

Pallborðsumræður

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar
  • Mikko Kosonen, forseti Sitra
  • Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur og umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins Hvað höfum við gert?
  • Sigrún Hildur Jónsdóttir, einn af stofnendum Klappa
  • Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs

Spjall, léttar veitingar og ljúfir tónar

Hrund Gunnsteinsdóttir, stjórnarformaður Tækniþróunarsjóðs og Sigurður Björnsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís, stýrðu fundinum.

Myndir frá viðburðinum má sjá á facebook.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica