Rannís auglýsir styrki til starfsnáms í Svíþjóð
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2017.
Styrkir verða veittir:
- til framhaldsmenntunar eftir lokapróf í verknámsskóla eða sambærilega menntun
- til undirbúnings kennslu í verknámsskólum eða til framhaldsnáms verknámsskólakennara
- til ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er í boði á Íslandi
Heildarstyrkupphæð er um 1.2 milljónir króna eða 100.000 sænskar, sem skiptist á milli þeirra sem sækja um og taldir eru styrkhæfir.
Sænska ríkið fjármagnar styrkina.
Ath! Fyrirhugað nám verður að flokkast sem starfsnám í Svíþjóð. Nánari upplýsingar hjá Myndigheten för yrkeshögskolan.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Nánari upplýsingar veitir Dóra Stefánsdóttir.