Styrkir til að halda norrænar vinnusmiðjur í hug- og félagsvísindum

25.1.2016

Opnað hefur verið fyrir umsóknir hjá NOS-HS vegna styrkja til að halda vinnusmiðjur (workshops). Umsóknarfrestur er til 23. febrúar.

NOS-HS er samstarfsvettvangur í hug- og félagsvísindum á vegum fjármögnunaraðila rannsókna í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.

NOS-HS býður upp á styrki til að standa straum af kostnaði vegna vinnusmiðja (workshops). Rannsakendur sem starfa að rannsóknum í hug- og félagsvísindum og skyldum greinum geta sótt um styrk.

Nánari upplýsingar um umsóknarferlið á vefsíðu NOS-HS

Sækja um









Þetta vefsvæði byggir á Eplica