Styrkir til atvinnuleikhópa

17.8.2017

Leiklistarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa á árinu 2018. Veittir eru styrkir til einstakra verkefna eða starfssamninga til tveggja ára. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 þann 2. október nk.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn.

Athugið að umsókn um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna ef umsækjandi merkir við þar til gerðan reit í umsóknarformi.

Samkvæmt leiklistarlögum nr. 138/1998 skilar leiklistarráð tillögu til mennta- og menningar­málaráðu­neytisins um úthlutun fjár til stuðnings atvinnuleikhópum.

Nánari upplýsingar 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica