Vel sótt málstofa um loftslagsbreytingar á Íslandi

12.11.2020

Þann 5. nóvember sl. stóð Rannís, ásamt fleiri aðilum, að málstofu á netinu um loftslagsbreytingar. Þar beindi vísindafólk sjónum að þeim víðtæku áhrifum sem loftslagsbreytingar hafa haft á Íslandi síðustu 50 ár og rýndi í þær breytingar sem búast má við á næstu 50 árum. 

Erindin á málstofunni þóttu afar áhugaverð og gefa skýra mynd af þeim áhrifum sem loftslagsbreytingar hafa haft og hvers má vænta í framtíðinni. 162 einstaklingar fylgdust með málstofunni í beinni útsetningu og hafa nú þegar 891 horft á upptökuna á netinu. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér þessi erindi. 

Upptaka af málstofunni 

Viðburðurinn fór fram á ensku, og dagskráin var eftirfarandi:

  • The Climate - Past climatic changes in Iceland and outlook for the coming century. Presenters: Dr. Halldór Björnsson and Dr. Guðrún Nína Petersen.
  • The Cryosphere - Mass balance of Icelandic glaciers in the 20th and 21st century. Presenter: Prof. Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir.
  • The Ocean - Large-scale changes and marine ecosystems around Iceland. Presenter: Dr. Hrönn Egilsdóttir.
  • The Land - Terrestrial ecosystems in Iceland, recent past, the present and predictions of the near future. Presenter: Dr. Starri Heiðmarsson.
  • The Freshwater - Icelandic freshwater diversity in space and time. Presenter: Prof. Bjarni Kr. Kristófersson.
  • The Humans - Reflections on Icelanders and Arctic Research in the Anthropocene. Presenters: Dr. Catherine Chambers and Dr. Níels Einarsson.
  • Rannís overview of Arctic research in Iceland, including international collaboration and funding opportunities for scientists focusing on the Arctic. Presenter: Egill Níelsson.

Málstofan var hluti af röð viðburða á netinu undir yfirskriftinni Samtal um Norðurslóðir, Iceland, an integrated part of the Arctic: ±50 years, sem fram fara haustið 2020. Á þeim eru tekin fyrir málefni norðurslóða og áherslur íslenskra samtaka og stofnana hvað varðar samfélög, samvinnu, heilbrigði og orku á Norðurslóðum.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica