Hvar leynast tækifæri fyrir ungt fólk að stunda nám og störf erlendis?

18.8.2025

Euroguidance og Eurodesk á Íslandi bjóða upp á kynningu á tækifærum sem Rannís býður upp á, á vegum Landskrifstofu Erasmus+ , European Solidarity Corps og Nordplus .

  • Untitled-design-8-_1755525179434

Kynningin er aðallega hugsuð fyrir náms- og starfsráðgjafa, aðra ráðgjafa sem og starfsfólk, sem starfa með ungu fólki á aldrinum 14-30 ára.

Á kynningunni verður farið yfir þau tækifæri erlendis sem bjóðast í gegnum þær áætlanir sem að  Rannís umsýslar. Kynningin er á vegum Eurodesk og Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar (Euroguidance) á Íslandi. Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast nánar möguleikum og þeim tækifærium sem styðja ungt fólk í alþjóðlegri þátttöku, námi og starfsreynslu. Starfsfólk mun líka svara spurningum og ræða við þátttakendur. 

Kynningin verður þann 4. september kl. 14:00 og fer fram á Teams. 

Skráning er opin og hvetjum við áhugasöm til að skrá sig.

Skráning hér 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica