Hafmynd hlýtur nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs

22.2.2007

Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra afhenti fyrirtækinu Hafmynd efh. Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs í morgun. Verðlaunin voru afhent á Nýsköpunarþingi og veitti þeim viðtöku Torfi Þórhallsson framkvæmdastjóri.

Hafmynd var stofnuð árið 1999 en undirbúningur fyrirtækisins hófst nokkrum árum áður. Stofnendur voru Hjalti Harðarson, verkfræðingur og Sjávarútvegsstofnun Háskóla Íslands. Síðar bættist Hafrannsóknastofnunin í hópinn ásamt nokkrum fyrirtækjum og einstaklingum.Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins kom að fjármögnun Hafmyndar um sama leyti, en upphaf nýsköpunarkreppunnar á haustmánuðum 2001 reyndist ekki fengsæll tími til þess að afla áhættufjár meðal innlendra fjárfesta. Áhugi erlendra kaupenda var hins vegar vakinn og í árslok 2003 lagði Mallard, fyrirtæki í eigu Össurar Kristinsson, til fjármagn til þess að hefja smíði nýrrar framleiðslugerðar djúpfarsins. Framleiðsla hófst um mitt ár 2004 og voru fyrstu djúpför til erlendra kaupenda afhent árið eftir.

Tæknisjóður og síðar Tækniþróunarsjóður hafa veitt fyrirtækinu styrki á liðnum árum.

Forsögu Hafmyndar má rekja til Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands í lok áttunda- og byrjun níunda áratugarins. Við eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar voru stundaðar rannsóknir og þróun á rafeindabúnaði til margvíslegra nota allt frá íssjám til rafeindavoga í frystihúsum. Stofnandi Hafmyndar kemur úr þessu frjóa háskólaumhverfi en það gerir einnig Torfi Þórhallsson, verkfræðingur og núverandi framkvæmdastjóri, sem starfaði um skeið hjá Verkfræðistofnun Háskóla Íslands. Tengsl við Háskólann hafa því verið sterk frá upphafi og margir nemar hafa valið sér meistaraverkefni hjá Hafmynd og sumir þeirra hafa síðan verið ráðnir til starfa hjá fyrirtækinu.

Jörundur Svavarsson, prófessor við Líffræðiskor Háskóla Íslands studdi fyrirtækið í upphafi með pöntun á djúpfari til rannsókna. Hönnun tækisins lagði grunninn að núverandi gerð djúpfars Hafmyndar sem byggt er á einingum er raða má saman á þann hátt sem best hentar hverjum notanda.

Með einingakerfinu hefur Hafmynd tekist að uppfylla þarfir ólíkra markhópa, svo sem vísindamanna sem vilja mæla eðlisfræðilega eiginleika sjávar, sjómælingamanna, verktaka í olíuiðnaði og landvarnarmanna eða sjóherja sem leita að sprengjum á sjávarbotni. Í framhaldi má nefna að Hafmynd hlaut þann heiður að vera valið eitt fárra erlendra fyrirtækja til að selja tæknibúnað til bandaríska sjóhersins. Af öðrum erlendum kaupendum djúpfarsins má nefna Rannsóknaráð Kanada (National Research Council), University of British Columbia, rannsóknastofnun sjóhers Ástralíu auk ótilgreinds flota innan NATO.

Einingahönnun djúpfarsins hefur freistað erlendra tækjaframleiðenda og hafa nokkrir þeirra þróað einingar sem boðnar verða með djúpfarinu. Má þar nefna fyrirtækið GeoAcoustics í Bretlandi sem framleitt hefur einingu til sjómælinga og Scanmatic í Noregi sem er að þróa einingu fyrir djúpfarið svo hægt verði að nota það sem kafbátahermi. Djúpfarið "hermir" þá eftir stórum kafbáti og verður notað í æfingaskyni hjá einu af NATO-ríkjunum. Með þessu móti má spara mikla fjármuni þar sem ekki þarf kafbát í fullri stærð með áhöfn við æfinguna.

Margvíslegar rannsóknir hafa verið stundaðar með djúpförum Hafmyndar og ýmis athyglisverð verkefni eru framundan. Má þar nefna siglingu undir hafísbreiðuna við norðurströnd Alaska í vor á vegum Scott Polar Institute, rannsóknir við Grænland í ágúst á vegum University of New York, og ýmsar mælingar á vegum Orkuveitu Reykjavíkur.  Öll þessi verkefni nýta sér á einn eða annan hátt eiginleika djúpfarsins og eru þau illframkvæmanleg með eldri tækni.

Djúpfarið er markaðssett undir nafninu Gavia en "Gavia immer" er latneska heitið á himbrima en hann gengur undir nafninu "the great northern diver" meðal enskumælandi manna.Í vetur hlaut Hafmynd viðurkenningu markaðsrannsóknafyrirtækisins Frost & Sullivan fyrir hönnun djúpfarsins og notkun þess við eftirlit í höfnum.

Áætlanir gera ráð fyrir stigvaxandi sölu næstu árin. Nú þegar er búið að tryggja samninga um sölu fyrir 100 milljónir króna í ár sem er um þriðjungur af áætluðum sölutekjum ársins. Hjá Hafmynd starfa nú 14 manns sem koma úr ýmsum áttum með margvíslega reynslu, m.a. af vélhönnun fyrir rafeindabúnað á miklu dýpi, tölvusjón, mælingum á suðurskautinu, markaðssetningu og framleiðslu tæknibúnaðar til olíuiðnaðarins í Noregi, framleiðslu fjarskiptabúnaðar í Danmörku, samsetningu og prófun rafeindabúnaðar, námi í Svíþjóð, Þýskalandi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Danmörku og víðar.

Stjórn Hafmyndar skipa Gunnar Stefánsson, formaður, Hilmar Janusson og Björn Jónsson.

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica