Kennitölur rannsókna, tækni og samkeppni í Evrópu 2008/2009
Út er komin skýrslan A more research-intensive and integrated Eropean Research Area. Science, Technology and Competitiveness key figures report 2008/2009. Í skýsrlunni má sjá samanburð á helstu stærðum sem einkenna rannsóknir og nýsköpun í Evrópu og í samanburði við önnur lönd, aðallega Bandaríkin og Japan. Árið sem upplýsingar miðast við er 2006, þó viðmiðunarárið í tilfelli Íslands sé í flestum tilfellum 2005. Í skýrslunni er skoðuð þróun frá 2000 til 2006. Skýrslan er ásamt öðru efni á undirsíðu um skýrslur og greinargerðir.
Fleiri skýrslur og greinargerðir um evrópska rannsóknasvæðið má nálgast hér.