Sjálfvirkt gæðamat augnbotnamynda hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2015
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2015 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þann 22. febrúar.
Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir Sjálfvirkt gæðamat augnbotnamynda og var það unnið af Benedikt Atla Jónssyni, nema í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinendur hans í verkefninu voru Einar Stefánsson, Gísli Hreinn Halldórsson, Róbert Arnar Karlsson og Sveinn Hákon Harðarson. Verkefnið var unnið í samstarfi Oxymap, Háskóla Íslands og Landsspítalans og var það valið úr hópi fimm verkefna Nýsköpunarsjóðs námsmanna frá sl. sumri, sem valin voru sem öndvegisverkefni sjóðsins.
Hér er tengill í upplýsingar um öndvegisverkefnin fimm sem tilnefnd voru.
Um vinningsverkefnið
Augnbotnamyndir eru mikilvægar í augnlækningum til að greina og fylgjast með augnsjúkdómum. Árangur slíkrar greiningar ræðst þó af myndgæðum þar sem léleg myndgæði geta falið læknisfræðileg ummerki og valdið rangri greiningu. Hingað til hefur reynst erfitt að meta gæði og skerpu mynda, en í verkefninu var þróuð sjálfvirk aðferð til að meta gæði augnbotnamynda. Aðferðin hjálpar þeim sem tekur myndir að sjá strax hvort myndirnar eru nægilega góðar og voru 254 augnbotnamyndir, af jafnmörgum einstaklingum notaðar til að þjálfa gervigreindar-reiknirit til að meta skerpu og fókus mynda. Niðurstöður reikniritsins voru síðan bornar saman við einkunnir frá sérfræðingum. Sjálfvirka aðferðin, sem var þróuð í þessu verkefni, metur myndgæði með mun áreiðanlegri hætti en sérfræðingar. Því tryggir hún að myndatakan verður skilvirkari og áreiðanlegri. Þannig er t.d. ólíklegra að endurtaka þurfi myndatöku síðar vegna lélegra myndgæða. Í því felst sparnaður og greiningin verður öruggari vegna betri myndgæða. Að auki felur aðferðin í sér ýmsa möguleika til hagnýtingar sem hugbúnaðarvara fyrir augnbotnamyndatöku og fleira. Sjálfvirka aðferðin mun verða hluti af næstu hugbúnaðaruppfærslu fyrirtækisins Oxymap, sem hefur þróað tæki og hugbúnað til að greina augnbotnamyndir. Aðferðin er nú einnig komin í notkun á Landspítalanum og áhugi er á henni erlendis.
Verðlaunagripurinn í ár
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í tuttugasta sinn. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhendir verðlaunin. Verðlaunagripurinn er listaverkið Óljóst (2015) eftir listamanninn Þór Sigurþórsson. Allir sem tilnefndir eru og hafa hlotið þá viðurkenningu að verkefnið þeirra hefur verið valið sem öndvegisverkefni sjóðsins fengu viðurkenningarskjal undirritað af forsetanum.
Nýsköpunarsjóður námsmanna
Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður árið 1992 til að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknaverkefni. Styrkjum er úthlutað til kennara á háskólastigi, fyrirtækja, rannsóknastofnana eða einstaklinga til að ráða háskólanema til sumarstarfa. Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, jafnt fyrir atvinnulíf sem og á viðkomandi fræðasviði.