Verkefni Grunnskóla Bolungarvíkur kosið besta eTwinning verkefnið 2015
Verkefni Grunnskóla Bolungarvíkur hlaut aukaverðlaun sem besta eTwinning verkefnið í Evrópu 2015.
Í lok Evrópuverðlauna eTwinning síðast liðinn fimmtudag dró til tíðinda þegar verkefni Grunnskóla Bolungarvíkur, Art Connects Us, fékk óvænt sérstök verðlaun sem besta eTwinning verkefnið í Evrópu 2015, en valið fer fram með leynilegri kosningu. Fyrr um kvöldið hafði verkefnið hlotið önnur verðlaun í sínum flokki, 4-11 ára, og má því með sanni segja að Grunnskóli Bolungarvíkur hafi verið í sviðsljósinu á verðlaunahátíðinni sem fór fram í Brussel
Zofia Marciniak, kennari við Grunnskóla Bolungarvíkur, stýrði Art Connects Us verkefninu ásamt skólum frá Póllandi, Slóveníu, Tyrklandi, Spáni og Frakklandi. Zofia tók á móti báðum verðlaunum með samstarfskennara sínum frá Póllandi ásamt einum pólskum og einum íslenskum nemanda.
- Skemmtilega frétt um verðlaunaafhendinguna er hægt að lesa hér.
- Sjá frekari upplýsingar um þá möguleika sem bjóðast í eTwinning.
- Verkefnisstjóri eTwinning á Íslandi er Guðmundur Ingi Markússon.