Nýsköpunarþing 2017
Nýsköpunarþing Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins var haldið fimmtudaginn 30. mars á Grand Hótel Reykjavík kl. 8:30-10:30. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017 voru afhent á þinginu.
Þema þingsins í ár var Draumaland nýsköpunar
Kynnt var glæný úttekt á nýsköpunarumhverfinu á Íslandi að fyrirmynd MIT tækniháskólans í Boston. MIT hefur þróað frumkvöðlahraðal fyrir landsvæði sem kallaður er REAP (Regional Entrepreneurship Acceleration Program) og miðar að því að bæta umhverfi frumkvöðlastarfs. Ísland tekur þátt með því að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem styrkja umhverfið og skapa grunn fyrir öflugan og nýsköpunardrifinn frumkvöðlageira. Slík vinna ætti að leiða til fjölgunar á íslenskum þekkingarfyrirtækjum sem eru samkeppnisfær á alþjóðavísu.
Dagskrá
Formleg dagskrá hófst kl. 8:30 og lauk kl. 10:30.
- Ávarp
 Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra nýsköpunar
- MIT REAP - frumkvöðlahraðall fyrir landsvæði               
 Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
- Innsýn í nýsköpun                                                                        
 Viðtöl við íslenska frumkvöðla
- Lykilþættir MIT verkefnisins                                                   
 Ragnheiður Magnúsdóttir, formaður tækninefndar VTR, viðskiptaþróun innri sölu hjá Marel
 Sækja kynningu (pdf)
- Greining á frumkvöðlaumhverfi Íslands                            
 Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, stofnandi Northstack
 Sækja kynningu (pdf)
- Innsýn í nýsköpun                                                                        
 Viðtöl við íslenska frumkvöðla
- MIT REAP - næstu skref og markmið                                    
 Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
- Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017                                        
 Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra nýsköpunar
- Tónlistaratriði
 Jana María Guðmundsdóttir 
Fundarstjóri var Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.
Húsið opnaði kl. 8:00 með léttum morgunverði.
 
              

 
            