Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð

5.5.2020

Í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu hefur stjórn Tækniþróunarsjóðs ákveðið að flýta umsóknafresti í Fyrirtækjastyrkina; Sprota, Vöxt/Sprett og Markaðsstyrk til 15. júní 2020 kl. 16.00.

Tækniþróunarsjóður styrkir nýsköpunarverkefni sem geta aukið samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Auglýst er eftir umsóknum í eftirfarandi flokka:

  • Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
  • Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.
  • Markaðsstyrkur er ætlaður litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem verja að lágmarki 10% af veltu sinni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári. Styrkinn er hægt að sækja um vegna sérstaks markaðsátaks en einnig til uppbyggingar innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.

Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar eru að finna á vefsvæði Tækniþróunarsjóðs.

Um er að ræða flýttan umsóknarfrest en úthlutun verður haustið 2020.

Merki Tækniþróunarsjóðs









Þetta vefsvæði byggir á Eplica