Til hamingju með daginn, vísindamenn!

28.9.2019

Vísindavaka Rannís verður haldin í dag, laugardaginn 28. september kl. 15:00-20:00 í Laugardalshöllinni. Á Vísindavöku finna allir eitthvað við sitt hæfi og er fólk á öllum aldri boðið velkomið, en markmiðið er að almenningur fái tækifæri til að spjalla við vísindafólk um viðfengsefni þess. Aðgangur er ókeypis og margt spennandi að sjá og reyna á Vísindavöku!

  • Rannis-2013-313_1569602359821

Vísindavakan hefst kl. 15:00 með afhendingu viðurkenningar Rannís fyrir vísindamiðlun. Sprengju-Kata mun svo sprengja Vísindavökuna í gang! Að setningu lokinni opnar sýningarsvæðið með lifandi vísindamiðlun þar sem gestir geta fundið eitthvað skemmtilegt og skrýtið fyrir alla aldurshópa auk þess sem stuttir fyrirlestrar verða fluttir á sal.

Svarthol, sebrafiskar, hitamyndavél og handritasmiðja!

Margt forvitnilegt verður í boði á Vísindavöku, en um 90 verkefni verða kynnt á vegum háskólanna, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Matarprentari, syngjandi skál, vatnabjöllur, skötuormar, hakkaþon, þrívíddarprentarar, vísindasmiðja, dysjar dæmdra manna, tónsköpun með gervigreind, jafnvægisstjórnun, barmerkjavél, vínylskeri, rauntímarennsli í jökulám, jarðskjálftamælar, legó-vélmennakeppni, listræn róla og svefnrannsóknir eru aðeins dæmi um þau verkefni sem verða kynnt á Vísindavöku. 

Vísindin lifna við á Vísindavöku!

Á Vísindavökunni kynnir fræðafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum viðfangsefni sín fyrir almenningi á lifandi og skemmtilegan hátt. Gestir fá að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir, kynnast ýmsum afurðum og spjalla við vísindafólkið sjálft um hvernig er að starfa að vísindum, rannsóknum og nýsköpun. Lögð er áhersla á lifandi vísindamiðlun og virka þátttöku gesta og eru börn og ungmenni sérstaklega boðin velkomin á Vísindavöku.

Vísindavaka um alla Evrópu

Vísindavaka er haldin síðustu helgina í september í 370 borgum og bæjum í 30 löndum um alla Evrópu til heiðurs evrópsku vísindafólki. Vísindavaka er styrkt af Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica