Tækniþróunarsjóður - Kynning 8. september

5.9.2011

Tækniþróunarsjóður - Kynningarfundur 8. september kl. 8.30-10 í Húsi atvinnulífsins.

Tækniþróunarsjóður boðar til opins kynningarfundar í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fimmtudaginn 8. september kl. 8.30-10, í tengslum við næsta umsóknarfrest sjóðsins 15. september nk.

Starfsmenn Rannís fjalla um umsóknar- og matsferli sjóðsins og svara fyrirspurnum.

Einnig verður kynnt markáætlun á orku- og umhverfissviði, menntasviði og heilbrigðissviði, með umsóknarfrest 1. nóv.

Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður hjá Samtökum iðnaðarins, stýrir fundi. Kaffiveitingar.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica