Kynning á styrkjum á vegum Evrópska rannsóknaráðsins

5.9.2011

Styrkir á vegum Evrópska rannsóknaráðsins - Ideas

Kynningarfundur á vegum Rannís, 8. september 2011 kl. 9-11 á Hótel Sögu, 2. hæð.

Rannís og Evrópska rannsóknaráðið (ERC) standa fyrir kynningu á styrkjum ráðsins fimmtudaginn 8. september næstkomandi. Fulltrúi ERC, Maria Carmen Garcia Fernandez, talar fyrir hönd ERC. Nánari upplýsinga um áætlunina er að finna HÉR.

Dagskrá:

  • Maria Carmen Garcia Fernandez talar almennt um styrkjakerfi ERC
  • Sigurður Brynjólfsson segir frá reynslu sinni af ERC
  • Viðar Helgason kynnir þá aðstoð sem veitt er umsækjendum við gerð umsókna

Fundarstjóri er Katrín Valgeirsdóttir

Kynningin verður haldin á Hótel Sögu, 2. hæð í sal Harvard I og hefst kl. 09:00. Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Vinsamlegasta sendið tilkynningu um þátttöku á netfangið rannis@rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica