Nýsköpun í opinberum rekstri

10.10.2011

Ráðstefna um nýsköpun í opinberum rekstri verður haldin 3. nóvember nk. á Grand hótel Reykjavík. Á ráðstefnunni verða veitt sérstök verðlaun fyrir nýsköpun í opinberum rekstri auk þess sem vefsíðu um nýsköpun í opinberum rekstri verður hleypt af stokkunum. Gestafyrirlesari verður Edwin Lau frá OECD.

 

Fjármálaráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Rannís hafa tekið höndum saman um að draga athygli að nýsköpun og þróunarverkefnum í starfsemi hins opinbera og stuðla að nýsköpun í opinberum rekstri á Íslandi. Af því tilefni var óskað eftir tilnefningum forstöðumanna til nýsköpunarverðlauna í opinberum rekstri í síðasta mánuði. Einu skilyrðin eru að verkefninu hafi verið hrint í framkvæmd á sl. tveimur árum og að skilgreindum árangri hafi verið náð.

Nýsköpun í opinberum rekstri felur í sér að skapa nýjar lausnir og bæta það sem er til staðar í starfsemi opinberra stofnana á vegum ríkis og sveitarfélaga. Þetta á m.a. við um nýja og endurbætta þjónustu eða vöru, tækni, aðferðir, stjórnskipulag, verklag og verkferla.

Tilnefningar ásamt rökstuðningi skulu sendar á vefpóstfangið nyskopun@fjr.stjr.is og er skilafrestur tilnefninga til nýskopunarverðlauna í opinberum rekstri til 1. október nk

Sjá nánar um verkefnið hér.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica