Úthlutun Tækniþróunarsjóðs haustið 2011

20.12.2011

Lokið hefur verið við að meta umsóknir í Tækniþróunarsjóði, en umsóknarfrestur var til 15. september sl.

Alls barst 101 umsókn til Tækniþróunarsjóðs í haust og hefur stjórn sjóðsins ákveðið að bjóða verkefnisstjórum 13 verkefna að ganga til samninga.  Hér má nálgast lista yfir verkefnin.

Alls barst 21 umsókn í markáætlun Tækniþróunarsjóðs, en umsóknarfrestur var til 1. nóvember sl. Ekki er búið að fara yfir þær umsóknir en áætlað er að úthlutun verði í lok janúar eða byrjun febrúar 2012.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica