Sumarvinna við sjálfstæðar rannsóknir

1.2.2012

Nýsköpunarsjóður námsmanna lýsir eftir umsóknum fyrir styrkárið 2012. Umsóknarfrestur er til 8. mars kl. 16:00.

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.

  • Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja
  • Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein
  • Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna
  • Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna
  • Stjórn er heimilt að veita forgang verkefnum taki fyrirtæki eða aðrir aðilar þátt í kostnaði
  • Úthlutun liggur fyrir í byrjun apríl 2012

Hverjir geta sótt um?

  • Háskólanemar í grunn- og meistaranámi
  • Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir

Umsóknir eru rafrænar og ber að sækja um á síðu sjóðsins á heimasíðu Rannís hér.

Nánari upplýsingar veitir Hulda Proppé, hulda.p@rannis.is, sími 515 5825.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica