Launasjóður fræðiritahöfunda - Auglýsing um starfslaun 2012

9.2.2012

Rétt til að sækja um laun úr sjóðnum hafa höfundar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku. Meginhlutverk Launasjóðs fræðiritahöfunda er að auðvelda samningu bóka, og verka í stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu. Starfslaun eru að jafnaði veitt til hálfs árs, en heimilt er að veita þau til allt að þriggja ára. Þeir sem hljóta starfslaun úr sjóðnum skulu ekki gegna föstu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur. Starfslaun miðast við núgildandi kjarasamning Félags háskólakennara.

Umsóknarfrestur er til 22. mars (kl. 16:00). Tekið verður við umsóknum frá og með 15. febrúar næstkomandi. Umsóknir eru rafrænar. Nánari upplýsingar má nálgast hér.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica