Tilnefningar til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs

28.3.2012

Óskað eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2012. Frestur til að skila inn tilnefningum er til 16. apríl nk.

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1987 í nafni Rannsóknarráðs ríkisins, á 50 ára afmæli atvinnudeildar Háskóla Íslands.

Verðlaunin eru tvær milljónir króna.

Tilnefningar mega koma frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknarstofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna er heimilt að koma með tilnefningar til verðlaunanna. Með tilnefningu fylgi ferilskrá vísindamannsins.

Við mat á tilnefningum til verðlaunanna er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og framlags í störfum á alþjóðavettvangi svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjandastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags til starfsfélaga á vinnustað og miðlunar þekkingar til íslensks samfélags.

Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára, en tekið er tillit til tafa sem kunna að verða á ferli vísindamanns vegna umönnunar barna.

Sex handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd: Jakob K. Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tækniseturs Arkea, Valur Ingimundarson prófessor við Háskóla Íslands, Áslaug Helgadóttir aðstoðarrektor rannsóknamála Landbúnaðarháskóla Íslands, Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Unnur Anna Valdimarsdóttir forsöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við HÍ og Hilmar Janusson, þróunarstjóri Össurar hf.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 16. apríl 2012.

Tilnefningum og upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað til Rannís með tölvupósti á netfangið rannis@rannis.is

Nánar um Hvatningarverðlaunin hér.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica