Háskólalestin hlýtur viðurkenningu fyrir vísindamiðlun

3.10.2012

Viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun var afhent á Vísindavöku 2012. Að þessu sinni hlaut Háskólalestin viðurkenninguna.

Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og rannsókna hjá Háskóla Íslands veitti viðurkenningunni viðtöku við opnun Vísindavöku, sem haldin var í Háskólabíói föstudaginn 28. september. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenti viðurkenninguna fyrir hönd Rannís.

Háskólalestin ferðaðist um landið í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands 2011. Lestin heimsótti alls níu áfangastaði og stoppaði tvo daga á hverjum stað. Lögð var áhersla á lifandi vísindamiðlun til fólks á öllum aldri með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Viðtökur voru með eindæmum góðar og má segja að með Háskólalestinni hafi vísindin og fræðin verið færð til fólksins í landinu.

Háskólalestin byggðist upp á fjölþættum vísindaviðburðum þar sem margir lögðust á eitt við að uppfræða og skemmta samtímis. Í lestinni voru vísindamenn háskólans, kennarar og framhaldsnemendur og var lestin byggð á sjálfstæðum einingum sem mynduðu eina heild.

Helstu einingarnar sem ferðuðust með lestinni voru Háskóli unga fólksins, þar sem grunnskólanemar fá að kynnast um stund háskólanámi, vísindum og rannsóknum; Vísindavefurinn, sem svarar spurningum um allt milli himins og jarðar og er einn fjölsóttasti vefur landsins; Sprengjugengið,  sem er hópur efnafræðinema úr Háskóla Íslands sem vakið hefur mikla athygli fyrir kröftugar og litríkar tilraunir á sviði efnafræðinnar og loks Stjörnutjaldið, þar sem mátti fræðast um fyrirbæri alheimsins.

Háskólalestin var farin í samstarfi við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á landsbyggðinni en samstarfsaðilar voru einnig grunnskólar á landsbyggðinni, sveitarfélög og fleiri.

Í lestinni var boðið upp á vísindaleiki, létta en markvissa kennslu, fjör og gríðarlega fjölbreytt fræði sem oft voru sniðin að sérkennum þess staðar sem var heimsóttur. Áhersla var lögð á að auka skilning þátttakenda á vísindum, en í þeim hópi var almenningur; börn, unglingar og fullorðnir. Einnig var leitast við að sýna fram á mikilvægi rannsókna, vísinda almennt og nýsköpunar fyrir íslenskt samfélag. Alls staðar tóku vísindamenn beinan þátt í viðburðum lestarinnar.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica