Úthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna 2013

13.4.2013

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur lokið mati umsókna og liggur úthlutun sumarsins 2013 nú fyrir.

Sjóðnum bárust alls 374 umsóknir í ár fyrir um 357 háskólanema. Umsóknarfresturinn rann út hinn 8. mars síðastliðinn. Alls var sótt um tæplega 262,5 milljónir króna eða laun í 1544 mannmánuði.

Að þessu sinni hafði sjóðurinn 73 milljónir króna til úthlutunar og hlaut alls 91 verkefni styrk (árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki er því 24,7%). Í styrktum verkefnum eru 158 nemendur skráðir til leiks í alls 429 mannmánuði.

Allir umsækjendur fá tölvupóst með nánari upplýsingum um styrkveitinguna. Sá listi sem birtur er hér er yfir þau verkefni sem hljóta styrk árið 2013. Verkefnin eru skráð eftir nafni umsjónarmanns/a og titil verkefnis ásamt upplýsingum um aðsetur umsjónarmanns/a og þann fjölda nemenda og mannmánuða sem verkefnið er styrkt um.

Hér má nálgast listann yfir verkefnin sem hljóta styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna 2013.

.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica